Ég get svo sannarlega mælt með náminu á Hestafræðideild Háskólans á Hólum. Námið er að mínu mati frábært fyrir alla þá sem að vilja bæta sig sem fagmenn í hestamennskunni. Þetta opnaði augun mín fyrir því hversu mikið maður getur í raun menntað sig á þessu sviði og hvatti mig til að leita mér enn frekari þekkingar.