| Stjórn Háskólans á Hólum |
|
|
|
|
Við Háskólann á Hólum er rekstrar- og þjónustusvið undir forystu rekstrarstjóra. Undir sviðið heyrir m.a. almenn skrifstofa, starfsmannahald, fjármál, umsjón fasteigna og rekstur stoðeininga eins og t.d. bókasafn. Starfsþróunarnefnd er skipuð af rektor til tveggja ára í senn. Í nefndinni sitja rekstrarstjóri, sem er formaður nefndarinnar, fulltrúar deilda og fulltrúar tilnefndir af stéttarfélögum. Hlutverk nefndarinnar er að halda utan um starfsþróun, framgang og stigamat starfsmanna og fjalla um veitingu rannsóknaleyfa (sbr. 18. gr.). Nefndin vinnur náið með stigamatsnefnd. Í starfsreglum skólans má lesa nánar um hlutverk nefnda og embætta.
|