Aðalhaus

  • Heim  
  • Deildir ▼
  • Námið ▼
  • Rannsóknir ▼
  • Hólar ▼
  • Þjónusta ▼
  • Stjórn og samstarf ▼
  • Starfsfólk ▼
  • Nemendur ▼
Gráður og námskeiðslýsingar   Inntökuskilyrði og umsóknir   Kostnaður   Námsreglur   Kennsluskrá
Ferðamálafræði   Fiskeldis- og fiskalíffræði   Hestafræði   Bókasafn   Guðbrandsstofnun   Sögusetur ísl. hestsins   Verið
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Hólarannsóknin   Verið   Rannsóknarstefna
Staðsetning   Sagan   Náttúra og umhverfi   Aðrar stofnanir   Ferðaþjónusta Ósýnilega félagið
Skrifstofa   Bókasafn   Námsráðgjöf   Stúdentagarðar   Mötuneyti   Tölvu- og tæknimál   Líkamsrækt   Sala   Önnur þjónusta  
Stefna   Stjórn   Starfsreglur   Námsreglur   Samstarf
Listi yfir starfsfólk   Starfsmannafélag Hólaskóla   Starfsmannastefna
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Stúdentafélagið   Námsreglur


Starfsreglur fyrir Hólaskóla - Háskólann á Hólum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar


l. KAFLI Hlutverk háskólans

1. gr.
Háskólinn á Hólum er vísindaleg fræðslu- og rannsóknastofnun á háskólastigi. Starfsemi skólans byggist á lögum nr. 57/1999 um búnaðarfræðslu með áorðnum breytingum og lögum um háskóla nr. 63/2006. Háskólinn á Hólum er miðstöð fyrir kennslu og rannsóknir í hrossarækt og hestamennsku, fiskeldi og ferðaþjónustu í dreifbýli. Við skólann er heimilt að starfrækja alþjóðlega deild í hrossarækt og hestamennsku þar sem innheimta má skólagjöld. Stjórn Háskólans á Hólum er heimilt að stofna til kennslu eða rannsókna á öðrum fræðasviðum, enda uppfylli starfsemin skilyrði til viðurkenningar samkvæmt lögum nr. 63/2006, um háskóla.

II. KAFLI Stjórnskipulag

2. gr. Háskólaráð
Stjórn Háskólans á Hólum er falin háskólaráði og rektor. Háskólaráð markar stefnu í kennslu og rannsóknum og mótar skipulag háskólans. Háskólaráð kveður á um skipulagningu fagdeilda innan háskólans og starfstilhögun. Háskólaráð getur ákveðið sérstök viðbótarinntökuskilyrði fyrir hverja skilgreinda námsbraut háskólanámsins (sbr. 10. gr. laga nr. 57/1999). Háskólaráð veitir ráðherra umsögn um ráðningu rektors. Rektor er formaður háskólaráðs og boðar til funda eftir þörfum. Óski þrír háskólaráðsfulltrúar eftir fundi er rektor skylt að boða til hans. Varamenn sitja fundi ráðsins í forföllum aðalfulltrúa. Háskólaráðsfundur er ályktunarbær ef tveir þriðju hlutar atkvæðisbærra manna sækja fund. Afl atkvæða ræður úrslitum mála. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði rektors úrslitum. Færa skal til bókar ákvarðanir háskólaráðs.

3. gr. Rektor
Ráðherra skipar rektor til fimm ára að fenginni umsögn háskólaráðs. Rektor er yfirmaður stjórnsýslu háskólans og ber ábyrgð á rekstri hans. Hann ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar af háskólaráði. Rektor er æðsti fulltrúi Háskólans á Hólum gagnvart mönnum og stofnunum innan skólans og utan. Hann stýrir starfsemi háskólans og hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki sér heildarstefnu í málefnum skólans. Rektor hefur ráðningarvald yfir öllum starfsmönnum skólans. Rektor skal sjá til þess að til séu starfslýsingar fyrir allt starfsfólk háskólans. Rektor ber ábyrgð á staðarhaldi á Hólum (sbr. 13. gr.). Verkefni rektors skulu skilgreind í erindisbréfi hans.

4. gr. Framkvæmdaráð
Framkvæmdaráð skólans sinnir daglegum rekstri og samræmir starf deilda og sviða. Í fram¬kvæmdaráði  sitja rektor, deildarstjórar, skrifstofustjóri og fjármálastjóri.

5. gr. Fjármála- og skrifstofustjóri

Rektor ræður fjármálastjóra og skrifstofustjóra sem eru yfirmenn fjármála- og þjónustusviðs háskólans.
Fjármálastjóri annast fjárreiður skólans í umboði rektors. Með sama hætti undir¬býr fjármálastjóri árlega fjárhagsáætlun í samstarfi við framkvæmdaráð háskólans og hefur eftirlit með því að rekstur sé í samræmi við gildandi heimildir.
Skrifstofustjóri hefur yfirumsjón með starfsmannamálum, umsjón fasteigna og stoðeininga. Hann ber einnig ábyrgð  á  þjónustuhluta rekstrarsviðsins og á gæðum þjónustu við nemendur, starfsfólk og gesti skólans.

6. gr. Rannsóknasvið
Rannsóknir háskóladeildanna mynda rannsóknasvið skólans. Rektor skipar sviðsstjóra til þriggja ára. Rektor skipar rannsóknanefnd eftir tilnefningu deilda og nemenda. Í rann¬sókna¬nefnd situr einn fulltrúi frá hverri deild, einn fulltrúi framhaldsnema auk sviðsstjóra, sem er formaður nefndarinnar.  Nefndin hefur yfirumsjón með samræmingu rannsóknanna. Hlut¬verk rannsóknasviðs er að veita aðstoð við gerð umsókna og stýringu rannsókna¬verkefna.  Rannsóknanefnd aðstoðar við mótun rannsóknastefnu, heldur utan um rannsóknasjóð Háskólans á Hólum og sinnir gæðaeftirliti með rannsóknum.

7. gr. Kennslusvið
Námsbrautir háskóladeildanna mynda kennslusvið skólans. Rektor skipar sviðsstjóra kennslu¬mála til þriggja ára sem jafnframt er sviðstjóri framhaldsnáms. Hann hefur yfirumsjón með samræmingu námsbrauta. Starfsmenn kennslusviðs hafa umsjón með nemenda¬bókhaldi, aðstoða deildir við inntöku nemenda og skipulag kennslu, sjá um gerð kennsluskrár og veita kennurum aðstoð.
Kennslunefnd er skipuð af rektor til þriggja ára, eftir tilnefningu deilda og nemenda. Í henni sitja sviðsstjóri kennslumála, sem er formaður, einn fulltrúi frá hverri deild og tveir fulltrúar nemenda. Kennslunefnd ber ábyrgð á gæðastjórnun námsins (sbr. 14. gr.) og ákveður úrbætur eftir því sem þörf krefur í samvinnu við framkvæmdaráð háskólans. Kennslu¬nefnd fjallar um kennsluskrár fyrir einstakar námsbrautir, mótar reglur um skráningu og eftirlit með framvindu náms, setur meginreglur um inntöku nemenda, námsmat og mat á öðru námi. Jafnframt fjallar kennslunefnd um málefni sem varða tæknileg atriði í námi og samstarf við aðrar háskólastofnanir. Kennslunefnd sker úr um ágreiningsmál sem upp kunna að koma í framkvæmd kennslu eða námsmats. Úrskurðum kennslunefndar má áfrýja til rektors og til áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema sbr. 20. gr. laga um háskóla nr. 63/2006.
Í hverri deild skal starfa námsnefnd, sem skipuð er tveimur kennurum, skipuðum af deildarstjóra og tveimur fulltrúum sem tilnefndir eru af nemendum deildar. Námsnefnd er skipuð til eins árs í senn. Námsnefndin er vettvangur umræðu um þróun kennsluskrár, kennsluáætlanir og framvindu námskeiða. 

8. gr. Svið framhaldsnáms
Námsbrautir á meistara og doktorsstigi mynda svið framhaldsnáms. Rektor skipar sviðsstjóra framhaldsnáms til þriggja ára, sem er jafnframt sviðsstjóri kennslusviðs. Hann hefur yfir¬um¬sjón með samræmingu á framhaldsnámi innan skólans. Rektor skipar framhalds¬námsnefnd eftir tilnefningu deilda og framhaldsnema. Í nefndinni sitja einn fulltrúi frá hverri deild, fulltrúi framhaldsnema auk sviðsstjóra, sem er formaður nefndarinnar. Hlutverk framhaldsnáms nefndar er að tryggja tengsl við aðrar menntastofnanir og hafa forgöngu um sam¬ræm¬ingu námsins. Hún ber ábyrgð á gæðastjórnun námsins (sbr. 14. gr.). Framhaldsnámsnefnd sér um inntöku nýrra nemenda í framhaldsnám, hefur eftirlit með framvindu náms, tilnefnir prófdómara og prófnefndir, sér skipun leiðbeinanda utan skólans og heldur utan um rannsóknanámssjóð Háskólans á Hólum.

9 gr. Deildarstjórar
Stjórn háskóladeilda er í höndum deildarstjóra sem ráðnir eru af rektor. Þeir stjórna málefnum hverrar deildar háskólans, í umboði rektors og háskólaráðs, og hafa frumkvæði að mótun stefnu hennar. Þeir vinna fjárhagsáætlun fyrir deildina í samráði við rekstrarstjóra og bera ábyrgð á mannahaldi og öllum aðföngum deildarinnar. Þeir bera ábyrgð á inntöku nýrra nemenda. Þeir bera ábyrgð á fasteignum, aðstöðu, búnaði og öðrum eignum skólans sem tilheyra deildinni og gera áætlanir um uppbyggingu og nýtingu þeirra. Deildarstjórar bera faglega ábyrgð á kennslu- og rannsóknarstarfsemi deildanna og stýra daglegri starfsemi og rekstri þeirra.

10. gr. Deildarfundir og háskólafundur
Deildarfundir fjallar um fagleg málefni hverrar deildar og skal boðað til þeirra minnst einu sinni á ári. Á deildarfundum eiga sæti allir fastráðnir starfsmenn deildarinnar og tveir fulltrúar nemenda kjörnir til eins árs í senn. Tilgangur deildarfunda er að:
- vera vettvangur umræðna um markmið og hlutverk deildarinnar
- fjalla um skipulag kennslu, námsframboð og námsleiðir
- fjalla um rannsóknir í háskóladeildum
- fjalla um fagleg málefni sem snerta deildina
- kjósa í ráð og nefndir og ákveða hlutverk þeirra og skyldur.
Háskólafundur er sameiginlegur fundur allra deilda sem haldinn er minnst árlega í þeim tilgangi að:
- ræða rekstraráætlun stofnunarinnar
- ræða almenna stefnumótun fyrir stofnunina á vettvangi kennslu og rannsókna
- ræða ýmis önnur málefni stofnunarinnar eftir efnum og ástæðum hverju sinni.

11. gr. Almennir starfsmannafundir
Almennir starfsmannafundir eru haldnir til að ræða málefni háskólans. Rektor boðar til starfsmannafunda eftir þörfum. Jafnframt geta deildarstjórar boðað til sérstakra starfsmannafunda innan deilda.

12. gr. Um samráð við aðra háskóla og samstarfsstofnanir háskólans
Háskólinn á Hólum og einstakar deildir hans skulu hafa samráð og samstarf við aðra háskóla, bæði innlenda og erlenda, til að nýta sem best tiltæka starfskrafta, gögn og aðstöðu og stuðla að fjölbreyttari menntunarkostum í samræmi við lög nr. 57/1999 og nr. 63/2006. Leita skal samkomulags við samstarfsaðila um gagnkvæma viðurkenningu námsþátta. Háskólanum er einnig heimilt að gera samstarfssamninga við aðrar stofnanir sem tengjast starfssviði háskólans. Deildarstjórar og sviðsstjórar skulu hafa forgöngu um samstarf og samræmingu í ofangreindum málaflokkum.

13. gr. Um staðarhald og samráð við aðrar stofnanir á Hólum
Rektor ber ábyrgð á staðarhaldi á Hólum sbr. lög nr. 57/1999 og samstarfi við Sveitarfélagið Skagafjörð. Jafnframt sér rektor um samstarf við aðrar stofnanir á Hólum.

14. gr. Gæðaeftirlit
Í Háskólanum á Hólum skal fara fram reglulegt mat á innra starfi háskólans sbr. lög nr. 57/1999 og lög nr. 63/2006. Háskólinn á Hólum setur sér siðareglur, umhverfisstefnu, starfsmannastefnu og jafnréttisstefnu.

III. KAFLI Deildir og akademískir starfsmenn


15. gr. Deildir háskólans
Starfsemi Háskólans á Hólum er skipt niður á deildir sem hver um sig ber ábyrgð á þeim kennslu- og rannsóknaverkefnum sem tilheyra viðkomandi deild. Með samnýtingu mannafla, tilraunaaðstöðu, kennslutækja og annarrar aðstöðu skal stefnt að því að efla fjölbreytt vísindastarf og tryggja hagkvæmni í rekstri. Deildir Háskólans á Hólum eru þessar: Ferðamáladeild, hestafræðideild og fiskeldis- og fiskalíffræðideild. Meginmarkmið ferðamáladeildar er að afla og miðla þekkingu um ferðamál, til að auka fagmennsku, nýsköpun og tryggja sjálfbæra uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi. Þessum markmiðum er mætt með kennslu, rannsóknum og þróunarverkefnum í víðtæku samstarfi við atvinnu- og fræðasamfélagið innan lands sem utan. Í starfi deildarinnar er lögð áhersla á gæði, samstarf og fjölbreytni í rannsóknum, kennslu og þróunarverkefnum. Markmið hrossaræktardeildar er að veita fagmenntun á sviði hrossaræktar, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu og að vinna að þróun og nýsköpun með rannsóknarstarfsemi. Með þessum hætti verði stuðlað að aukinni arðsemi í atvinnugreininni, útbreiðslu hestamennskunnar og velferð hestanna. Deildin er alþjóðleg miðstöð menntunar og rannsókna á sviði hrossaræktar, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu. Markmið fiskeldis- og fiskalíffræðideildar er að afla og miðla þekkingu á sviði sjávar- og vatnalíffræði, fiskeldis og fiskalíffræði. Deildin er miðstöð rannsókna, kennslu og endurmenntunar í sjávar- og vatnalíffræði, fiskeldi og fiskalíffræði á Íslandi. Deildin stuðlar að faglegri uppbyggingu fiskeldis í anda sjálfbærrar þróunar.

16. gr. Guðbrandsstofnun
Guðbrandsstofnun er sjálfstæð rannsókna- og fræðastofnun við Háskólann á Hólum, sem starfar samhliða deildum hans. Markmið stofnunarinnar er að treysta þekkingu á sviði ýmissa fræðigreina, einkum guðfræði, sögu, bókmennta, fornleifafræði, siðfræði, prentlistar, kirkjulistar, tónlistar og myndlistar og að auki á sviði þeirra greina raunvísinda sem stundaðar eru bæði við Háskóla Íslands og Háskólann á Hólum. Guðbrandsstofnun lýtur sérstakri stjórn og hefur sjálfstæðan fjárhag. Hólaskóli, embætti vígslubiskups á Hólum f.h. Þjóðkirkjunnar og Háskóli Íslands eru aðilar að Guðbrandsstofnun. Stjórn stofnunarinnar og yfirstjórn Háskólans á Hólum hafa náið samráð, m.a. með því að fundargerðir stjórnar Guðbrandsstofnunnar eru kynntar á fundum yfirstjórnar.

17. gr. Akademískir starfsmenn
Við Háskólann á Hólum starfa prófessorar, dósentar og lektorar. Þeir starfa við kennslu, rannsóknir, stjórnun og/eða önnur þau verkefni sem þeim eru falin af rektor og deildarstjórum og almennt falla undir starfssvið háskóla. Heimilt er að ráða aðra starfsmenn til sérhæfðra starfa. Um starfsskyldur, réttindi og ráðningar starfsmanna fer að öðru leyti eftir kjarasamningum og nánari ákvæðum í lögum og reglugerðum.

18. gr. Um rannsóknaleyfi
Rektor er heimilt að veita fastráðnum starfsmönnum háskólans rannsóknaleyfi í samræmi við sérstakar reglur þar um.

lV. KAFLI Nemendur, kennsla og próf.

19. gr.
Rektor og háskólaráð setja sérstakar námsreglur um nemendur, kennslu, próf og skipan námsbrauta.

V. KAFLI Gildistaka og endurskoðun

20. gr. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 57/1999 ásamt áorðnum breytingum og öðlast þegar gildi. Þær skal endurskoða eigi síðar en tveimur árum frá undirskrift þeirra.

Þannig samþykkt af háskólaráði þann 27. maí 2010.

Skúli Skúlason



 

Stjórn og samstarf

Stefna
Stjórn
Starfsreglur
Námsreglur
Samstarf
Ritstjóri og umsjón með vef: Sólrún Harðardóttir | Vefurinn er unnin í vefumsjónarkerfinu Joomla