Fjölsóttur ferðamannastaður Hólar í Hjaltadal eru einn merkasti sögu- og menningarstaður landsins og fjölsóttur ferðamannastaður. Sagan, helgi staðarins og náttúrufegurð leiða menn til Hóla.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
hringja: 455-6333 Afgreiðsla ferðaþjónustunnar er opin kl. 8-16 (yfir vetrartímann).
Hvað er hægt að gera og skoða? Margt er að skoða á Hólum svo sem Hóladómkirkju, Auðunarstofu, Nýjabæ, fornleifauppgröft, byggingar skólans og náttúrufegurð. Gefnir hafa verið út fræðslubæklingar fyrir ferðamenn meðal annars með söguslóð sem leiðir gesti um markverða staði og segir frá nokkrum brotum úr sögu staðarins. Skólinn hefur jafnfræmt gefið út göngukort með leiðum um Tröllaskaga. Kjósi fólk að fara í gönguferðir sem eru ekki lengri en svo að mögulegt sé að koma aftur gangandi heim til Hóla sama dag er um marga kosti að velja, bæði merktar leiðir og ómerktar. Hægt er að velja á milli stuttra göngutúra og lengri gönguferða, allt eftir óskum hvers og eins. Merktar hafa verið leiðir í Gvendarskál, í Námuna (þaðan sem grjótið var tekið í kirkjuna) og upp á Elliða. Um Hólaskóg hlykkjast ótal skemmtilegir stígar.
Menningardagskrá Á Hólum er boðið upp á margháttaða menningardagskrá á sumrin. Skoða dagskrá (2010) Atburðir vetrarins eru auglýstir í Sjónhorni og á korktöflu í skólahúsinu.
Gisting Á Hólum er boðið upp á gistingu og þar er fallegt tjaldsvæði. UPPBÚIN RÚM - Tveggja herbergja íbúðir með gistiplássi fyrir 2 - Herbergi með baði í smáhýsi - Herbergi án baðs í sumarhúsi (2-6 herbergja) SVEFNPOKAGISTING TJALDSTÆÐI VERÐSKRÁ
Ferðaþjónustan býður gistingu í húsunum við Brúsabyggð.
Veitingar - Hólaeldhúsið Opið er frá kl. 8-16 virka daga yfir vetrartímann. Hægt er að fá hádegismat kl. 12-13.
Sundlaug Á Hólum er sundlaug og heitur pottur. Sundlaugin er opin kl. 10-20 á sumrin, en yfir vetrartímann er hægt að komast í sund fyrir 10 manna hópa ef óskað er eftir því með dagsfyrirvara.
Í ferðaþjónustunni er lögð áhersla á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, íslenska menningu og náttúru.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
/ hringja: 455-6333. Afgreiðsla ferðaþjónustunnar er opin kl. 8-16 (yfir vetrartímann).