| Starfsmannastefna |
|
|
|
|
Starfsmannastefna Hólaskóla - Háskólans á Hólum
1. Inngangur Starfamannastefna Hólaskóla- Háskólans á Hólum tekur til allar starfsmanna skólans og þeirra stofnana sem heyra undir hann. Stjórnendur innan Háskólans á Hólum bera ábyrgð á því að starfsmannastefnunni sé framfylgt (rektor og háskólaráð, deildarstjórar, framkvæmdarstjórar og forstöðumenn stofnana). Rekstrarsvið fylgist með framkvæmd hennar. 2. Markmið Starfsmannastefnunni er ætlað að vera til hvatningar og upplýsingar fyrir starfsfólk og stjórnendur Háskólans á Hólum um það hvernig á að gera skólann að góðum vinnustað. Starfsmannastefnan byggir á lögum, reglum og samningum um tengsl starfsmanna og vinnustaðar, s.s. lögum um háskóla nr. 63/2006, lögum um búnaðarfræðslu nr. 57/1999, með áorðnum breytingum, lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, stjórnsýslulögum 37/1993 með áornum breytingum, jafnréttislögum nr. 96/2000, lögum um kjarasamninga nr. 94/1986 og kjarasamningum. Jafnframt mótast starfsmannastefnan af gagnkvæmum væntingum og hagsmunum Háskólans á Hólum og starfsfólks hans. Markmið starfsmannastefnu eru að: • Háskólinn á Hólum gegni lögmætu hlutverki sínu og uppfylli réttmætar væntingar sem gerðar eru til skólans og starfsmanna hans, • laða að hæft og áhugasamt starfsfólk sem helgar skólanum krafta sína, • lýsa vilja Háskólans á Hólum til að vera góður vinnustaður, • tryggja starfsfólki sem best starfsskilyrði og möguleika á að vaxa og dafna í starfi, • gera stjórnun markvissari, • starfsfólk sé vel upplýst um verkefni sín og skyldur. 3. Gagnkvæmar væntingar Meðal þeirra almennu væntinga sem Háskólinn á Hólum hefur til starfsmanna sinna eru að þeir sýni: • kostgæfni í starfi, • ábyrgð og sjálfstæði, • vilja og hæfni til samstarfs og samskipta, • skilning og frumkvæði, • sveigjanleika og aðlögunarhæfni, • að þeir starfi samkvæmt samningum, lögum, reglum og stefnu sem um starf þeirra gilda. Starfsmenn hafa einnig væntingar til Háskólans á Hólum sem vinnustaðar, sem nauðsýnlegt er að skólinn uppfylli til þess að hann geti ráðið og haldi áhugasömum og hæfum starfsmönnum. Væntingarnar eru meðal annars að: • þeir hafi tækifæri til að axla ábyrgð og taka þátt í stefnumótun skólans og þá sérstaklega ákvarðanatöku um málefni sem varða störf þeirra, • skyldur og ábyrgð stjórnenda séu skýrar, • starfsöryggi sé tryggt sem frekast er unnt, • að skólinn standi við skuldbindingar kjarasamninga, laga og reglugerða er varða, réttindi skyldur og velferð starfsfólks, • þeim sé sýnt traust, tillitssemi og hreinskilni, • unnið sé í góðu samstarfi og vinnuanda, • vinnuaðstaða sé góð, • þeim sé veitt tækifæri til að menntast og dafna í starfi, • jafnréttissjónarmiða sé gætt á öllum sviðum háskólastarfsins. 4. Leiðir að markmiðum starfsmannastefnu
|