Aðalhaus

  • Heim  
  • Deildir ▼
  • Námið ▼
  • Rannsóknir ▼
  • Hólar ▼
  • Þjónusta ▼
  • Stjórn og samstarf ▼
  • Starfsfólk ▼
  • Nemendur ▼
Gráður og námskeiðslýsingar   Inntökuskilyrði og umsóknir   Kostnaður   Námsreglur   Kennsluskrá
Ferðamálafræði   Fiskeldis- og fiskalíffræði   Hestafræði   Bókasafn   Guðbrandsstofnun   Sögusetur ísl. hestsins   Verið
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Hólarannsóknin   Verið   Rannsóknarstefna
Staðsetning   Sagan   Náttúra og umhverfi   Aðrar stofnanir   Ferðaþjónusta Ósýnilega félagið
Skrifstofa   Bókasafn   Námsráðgjöf   Stúdentagarðar   Mötuneyti   Tölvu- og tæknimál   Líkamsrækt   Sala   Önnur þjónusta  
Stefna   Stjórn   Starfsreglur   Námsreglur   Samstarf
Listi yfir starfsfólk   Starfsmannafélag Hólaskóla   Starfsmannastefna
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Stúdentafélagið   Námsreglur


Sandra Björg Stefánsdóttir Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Sandra Er ég hóf nám í Háskólanum á Hólum áttu hótelsstörf og -rekstur hug minn allan. Eftir árin þrjú á Hólum breyttist áhugi minn heilmikið og opnuðust augu mín fyrir því hversu óendanlega margir möguleikar tengjast ferðaþjónustu á Íslandi. Í náminu er lögð mikil áhersla á menningu annarsvegar og útivist hinsvegar ásamt öðrum námsgreinum

sem nauðsynlegar eru til að einstaklingar hafi grunn til þess að starfa sjálfstætt. Námið er því ákaflega fjölbreytt og áhugavert. Utan um námið heldur faglegur og skemmtilegur deildastjóri sem sér til þess að námið er einstaklingsmiðað á sama tíma og það er þverfaglegt. Nálægðin við kennara og starfsmenn skólans hentaði mér vel og hefur orðið til þess að ég hugsa enn um að fara „heim að Hólum“ þó ég sé nú flutt þaðan.

Á meðan náminu stóð komumst við nemendur í kynni við marga einstaklinga bæði úr fræðiheiminum og þá sem starfa við ferðaþjónustu á einn eða annan hátt. Þó mér hafi ekki verið það ljóst á meðan ég dvaldi á Hólum þá hefur það reynst mér ákaflega dýrmætt eftir að á atvinnumarkaðinn var komið.

Námið hefur opnað margar dyr í atvinnumálum fyrir mig og sem dæmi hef ég starfað sem fararstjóri á Krít, landvörður í Skaftafelli og starfa nú sem verkefnastjóri á Fræðasetri Háskóla Íslands á Hornafirði, þar sem vinna mín snýst um þróunar- og rannsóknarverkefni af ýmsum toga tengd ferðaþjónustu.

Sandra Björg útskrifaðist með BA gráðu í ferðamálafræði vorið 2008.

 
Ritstjóri og umsjón með vef: Sólrún Harðardóttir | Vefurinn er unnin í vefumsjónarkerfinu Joomla