Í Morgunblaðinu í gær var vel unnin grein um fiskeldi á Íslandi. Þar er meðal annars sagt frá því að bleikjueldi er að aukast og mikil aukning er á sölu bleikju erlendis.
Við Háskólann á Hólum hefur verið unnið mikilvægt rannsóknastarf og gerðar kynbætur á bleikju um áraraðir. Óhætt er að segja að þetta hafi skilað miklu til fiskeldisfyrirtækja og hafi haft úrslitaáhrif um gott gengi atvinnugreinarinnar.
Rannsóknir og kynbætur á bleikju hófust við skólann árið 1989 og var skólinn tilnefndur sem miðstöð landbúnaðarráðuneytisins á þessu sviði. Í upphafi kynbótanna var heppilegra eldisstofna leitað í ám og vötnum á Íslandi. Náttúrulegur fjölbreytileiki bleikju í mismunandi vötnum og vatnakerfum er mikilvæg erfðaauðlind sem eldið byggir á. Prófaðir voru fjölmargir bleikjustofnar og að lokum valdir tveir sem uxu vel og hugnuðust erlendum kaupendum. Þessir stofnar hafa síðan verið kynbættir á Hólum með það að markmiði að auka vaxtarhraða og draga úr ótímabærum kynþroska. Árangur af kynbótastarfinu hefur skilað því að vaxtarhraði hefur meira en þrefaldast og ótímabær kynþroski er ekki lengur vandamál í eldinu. Í farvatninu er að nýta kynbætur einnig til að auka gæði fisksins og bæta viðnám hans gagnvart sjúkdómum.