Ferðaþjónusta og fiskeldi eru atvinnugreinar sem eru í örum vexti og skortir fólk með góða menntun. Reynslan sýnir að skólinn útskrifar fólk sem getur tekið virkan þátt í uppbyggingu viðkomandi greina og því er óhætt að segja að námið gefi spennandi starfsmöguleika og fjölbreytta. Í skólanum fer fram umfangsmikið rannsókna- og þróunarstarf þannig að kennslan byggir á nýjustu upplýsingum og straumum sem í gangi eru hverju sinni.
Frekari upplýsingar Við vonum að þú eigir auðvelt með að fikra þig í gegnum vefinn og finna þær upplýsingar sem þú þarft áður en þú sækir um skólavist. Ef einhverjar spurningar vakna skaltu ekki hika við að hafa samband: Guðrún Helgadóttir deildarstjóri ferðamáladeildar Helgi Thorarensen deildarstjóri fiskeldis- og fiskalíffræðideildar
Velkomin í heimsókn! Verðandi nemendum er velkomið að koma í heimsókn til okkar, kynna sér aðstæður og spjalla við deildarstjóra, kennara og annað starfsfólk. Nemendur eru líka alltaf til í að ræða við væntanlega nemendur - nema kannski þegar þeir eru á hausnum í próflestri! Hafið samband fyrirfram.