Aðalhaus

  • Heim  
  • Deildir ▼
  • Námið ▼
  • Rannsóknir ▼
  • Hólar ▼
  • Þjónusta ▼
  • Stjórn og samstarf ▼
  • Starfsfólk ▼
  • Nemendur ▼
Gráður og námskeiðslýsingar   Inntökuskilyrði og umsóknir   Kostnaður   Námsreglur   Kennsluskrá
Ferðamálafræði   Fiskeldis- og fiskalíffræði   Hestafræði   Bókasafn   Guðbrandsstofnun   Sögusetur ísl. hestsins   Verið
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Hólarannsóknin   Verið   Rannsóknarstefna
Staðsetning   Sagan   Náttúra og umhverfi   Aðrar stofnanir   Ferðaþjónusta Ósýnilega félagið
Skrifstofa   Bókasafn   Námsráðgjöf   Stúdentagarðar   Mötuneyti   Tölvu- og tæknimál   Líkamsrækt   Sala   Önnur þjónusta  
Stefna   Stjórn   Starfsreglur   Námsreglur   Samstarf
Listi yfir starfsfólk   Starfsmannafélag Hólaskóla   Starfsmannastefna
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Stúdentafélagið   Námsreglur


Vegleg gjöf til Hóla frá Magnúsi Sigurðssyni Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

 

Ljósm.: Sólrún
Á myndinni eru frá vinstri: Víkingur deildarstjóri hestafræðideildar, Skúli rektor,
Rósa forstöðumaður bókasafns, Magnús og Arna Björg forstöðumaður Söguseturs
íslenska hestsins. Brotabrot af gjöfinni fyrir framan þau.

 

Magnús Sigurðsson læknir og hestamaður færði Háskólanum á Hólum og Sögusetri íslenska hestsins veglega gjöf við athöfn í dag.

 

Magnús sem komin er yfir áttrætt hefur í gegnum tíðina safnað orðum og orðatiltækjum sem tengjast hestum og hestamennsku. Við starfslok hellti Magnús sér svo að fullu í verkefnið og vann ötullega og markvisst að gerð orðasafns á þessu sviði. Hann leitaði víða fanga m.a. í útkomnum orðabókum, fornritum, íslenskum bókmenntum, fagbókum um hestinn og í erlendum ritum. Tilgangurinn með orðabókinni var að safna sem flestu um hesta og notkun þeirra allt frá því fyrir Íslandsbyggð. Magnús hafði og í huga að gömul orð sem ný gætu komið til góða í framtíðinni þegar fjölbreytni verður meiri í hestaíþróttum og annarri hestamennsku. Magnús kallar orðasafn sitt Orðfák.

 

Auk þess að afhenda Háskólanum á Hólum og Sögusetri íslenska hestsins Orðfák til varðveislu og vinnslu færði hann skólanum og setrinu stórt og mikið safn gagna sem hér greinir:

- Íslenskar bækur (fræðirit, bókmenntir á íslensku)
- Erlendar bækur (fræðirit, bókmenntir á erlendum málum)
- Tímarit (Hesturinn okkar, Eiðfaxi, Pony Post, á íslensku, þýsku og fleiri málum)
- Blöð (íslensk og erlend)
- Ljósrit (bækur, tímarit - á íslensku og erlendum málum)
- Hestastyttur og fleira þess háttar (úr gibsi, gleri, málmi, plasti, leir og tré)
- Myndir (málaðar, teiknaðar, ljósritaðar, prentaðar og saumaðar)
- Blaðaúrklippur og fleira

 

Það skal undirstrikað að safnið er mikið og merkt og er það mikill fengur fyrir allt fræðastarf sem tengist hestum og hestamennsku á Hólum. Gjöfin eflir bókasafnið umtalsvert. Sögusetur íslenska hestsins og Háskólinn á Hólum eru þakklát Magnúsi fyrir mikilvægt starf í þágu íslenskrar tungu og menningar, höfðinglega gjöf og þann hug sem hann ber til Hóla í Hjaltadal og þess starfs sem hér er unnið.

 

Arna Björg
Arna Björg flytur inngang að athöfninni og útskýrir gjöfina og tilkomu hennar.

 

Magnús
Magnús fylgir gjöfinni úr hlaði.

 

Skúli tekur við gjöfinni
Skúli Skúlason rektor tók við gjafabréfi frá Magnúsi og hélt síðan þakkarávarp.

 

Feðgin
Dóttir Magnúsar, María, var með honum í för.

 

Hesthús
Magnús var heillaður af aðstöðunni á Hólum.
Hann er hér ásamt Víkingi deildarstjóra hestafræðideildar.

 

Í kirkjunni
Í kirkjunni ásamt Hólabiskupi Jóni Aðalsteini Baldvinssyni.

 

 

- Texti: Sólrún
- Myndir: Sólrún og Arna Björg

 

 
Almennt
Námið
Fundir/námskeið
Fréttir
Aðstaða
Búnaður / nemendahestar
Rannsóknir
Nemendur
Útskrifaðir
Skólahestar
Knapamerki
Sögusetur
Ritstjóri og umsjón með vef: Sólrún Harðardóttir | Vefurinn er unnin í vefumsjónarkerfinu Joomla