| Málþing: Hafís og strandmenning |
|
|
|
|
Háskólasetrið á Blönduósi skipuleggur málþing
Miðvikudaginn 10. febrúar kl. 17-19.30 verður haldið málþing um hafís og strandmenningu á Pottinum og pönnunni á Blönduósi. Áhugaverð erindi verða flutt um málefni sem okkur eru ofarlega í huga núna á tímum loftslagsbreytinga og tíðra heimsókna ísbjarna til landsins. Meðal fyrirlesara eru alþjóðlega virtir erlendir og íslenskir fræðimenn. Ljóst er að á málþinginu gefst fólki kostur á að fræðast um ýmsar hliðar viðfangsefnisins frá mismunandi sjónarhornum. |