Aðalhaus

  • Heim  
  • Deildir ▼
  • Námið ▼
  • Rannsóknir ▼
  • Hólar ▼
  • Þjónusta ▼
  • Stjórn og samstarf ▼
  • Starfsfólk ▼
  • Nemendur ▼
Gráður og námskeiðslýsingar   Inntökuskilyrði og umsóknir   Kostnaður   Námsreglur   Kennsluskrá
Ferðamálafræði   Fiskeldis- og fiskalíffræði   Hestafræði   Bókasafn   Guðbrandsstofnun   Sögusetur ísl. hestsins   Verið
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Hólarannsóknin   Verið   Rannsóknarstefna
Staðsetning   Sagan   Náttúra og umhverfi   Aðrar stofnanir   Ferðaþjónusta
Skrifstofa   Bókasafn   Námsráðgjöf   Stúdentagarðar   Mötuneyti   Tölvu- og tæknimál   Líkamsrækt   Önnur þjónusta
Stefna   Stjórn   Starfsreglur   Námsreglur   Samstarf
Listi yfir starfsfólk   Starfsmannafélag Hólaskóla   Starfsmannastefna
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Stúdentafélagið   Námsreglur


Ferðamáladeild: námið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

kennslustund2
Nám í ferðamáladeild undirbýr nemendur fyrir störf í ferðaþjónustu og fyrir framhaldsnám á því sviði. Mikil áhersla er lögð á virk tengsl við stofnanir og fyrirtæki í ferðaþjónustu auk náinna tengsla við menntastofnanir í ferðaþjónustu hérlendis og erlendis.

Staðnám eða fjarnám með staðbundnum lotum
Það er gott að nema á Hólum í daglegu samneyti við samnemendur og kennara. Fólk er þá í fullu námi og er ekki í öðrum störfum. Aðstæður til náms og búsetu eru góðar. Margir nemendur tala einnig um dýrmæta reynslu þess að búa á stað sem Hólum.
Stór hópur fólks á ekki heimangengt og kýs fremur fjarnám með staðbundnum lotum. Við Háskólann á Hólum er notað námsumhverfi á vefnum sem heitir moodle. Þar er komið fyrir námsefni á ýmsu formi (hljóðskrár, skjásýningar, textaskjöl, vefsíður o.fl.), þar geta átt sér stað fjölbreytt samskipti og einnig eru í moodle ýmis tól t.d. fyrir verkefnaskil og próf. Fjarkennsla hófst við deildina haustið 2000.

 

UMSÓKNAREYÐUBLÖÐ

 




BA-nám í ferðamálafræði
Þriggja ára nám - 180 ECTS einingar.
Markmið BA-náms í ferðamálafræði er að mennta nemendur til virkrar þátttöku í þróun ferðaþjónustu og undirbúa þá fyrir rannsóknartengt framhaldsnám í ferðamálafræðum, ásamt því að gera nemendur færa um það hafa frumkvæði að stofnun smærri ferðaþjónustufyrirtækja og gegna stjórnunarstörfum á sviði ferðamála.
Námið er boðið í staðnámi og einnig fjarnámi með lotum.

Diplómanám í ferðamálafræði
Um er að ræða eins árs, 90 ECTS eininga, starfsnám sem skiptist í annars vegar bóklegt og verklegt nám við Hólaskóla – Háskólann á Hólum (60 ECTS) og hins vegar verknám (30 ECTS). Möguleiki er að stunda námið í fjarnámi með staðbundnumÚtikennsla lotum. Markmið diplómanáms í ferðamálafræði er að undirbúa nemendur bæði fyrir störf í ferðaþjónustu og nám til BA-prófs í ferðamálafræðum við Hólaskóla – Háskólann á Hólum. Áhersla er lögð á ferðaþjónustu sem tengist menningu og náttúru hvers svæðis og er námið byggt á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Með diplómagráðunni fást staðarvarðar- og landvarðarréttindi.
Námið er boðið í staðnámi og einnig fjarnámi með lotum.

Diplómanám í viðburðastjórnun
Eins árs starfsnám, 60 ECTS.
Námið er boðið í staðnámi eða fjarnámi með staðbundnum lotum. Það skiptist í námskeið við Hólaskóla – Háskólann á Hólum (30 ECTS), verknám (15 ECTS) og lokaverkefni (15 ECTS).
Markmið náms í viðburðastjórnun er að verða færari í að skipuleggja, fjármagna og stýra viðburði, gera viðburðinn upp, meta og gera grein fyrir framkvæmd hans. Námið er undirbúningur frekara náms til bakkalárprófs í ferðamálafræðum við Hólaskóla – Háskólann á Hólum. Áhersla er á samþættingu hagnýtra og fræðilegra þátta viðburðastjórnunar, námið er byggt á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.
>> Námið er boðið í staðnámi og einnig fjarnámi með lotum.

Áramótabrenna - árlegur viðburður

MA-nám í ferðamálafræði
Meistarapróf í ferðamálafræðum er undirbúningur að doktorsnámi og/eða undirbúningur fyrir störf að stefnumótun, skipulagningu, stjórnun og rekstri ferðaþjónustu, eða störfum að rannsóknum, þróun og eftirliti með ferðamálum. Um er að ræða 120 eininga nám, þar af að minnsta kosti 60 eininga rannsóknarverkefni, inntökuskilyrði eru BA/BSc próf eða sambærilegt.

 


Fornverkaskólinn
Fornverkaskólinn er samstarfsverkefni um handverkskennslu sem tengist byggingararfi Íslendinga, en getur einnig tekið til fleiri „fornverka“. Byggðasafn Skagfirðinga, smíðadeild Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og ferðamáladeild Hólaskóla hafa gert með sér samkomulag um námskeiðahald sem gengur undir nafninu Fornverkaskólinn.
Vefsíða Fornverkaskólans!

 
Almennt
Námið
Fundir/námskeið
Fréttir
Aðstaða
Rannsóknir
Nemendur
Útskrifaðir
Fornverkaskólinn
Hólarannsóknin
Ritstjóri og umsjón með vef: Sólrún Harðardóttir | Vefurinn er unnin í vefumsjónarkerfinu Joomla