Deildin er stærsta miðstöð fiskeldisrannsókna á Íslandi. Sérfræðingar skólans vinna að fjölbreyttum rannsókna- og þróunarverkefnum á sviði fiskeldis, fiskalíffræði og vistfræði. Skólinn hefur um árabil unnið að rannsóknum og kynbótum á bleikju en tilraunir með eldi sjávarfiska eru nú einnig á dagskrá. Nemendur taka virkan þátt í rannsókna- og þróunarstarfinu og fá þannig að kynnast af eigin raun nýjungum og verklagi. Deildin á í formlegu samstarfi við fjölda háskóla og rannsóknastofnana hérlendis og erlendis á sviði kennslu og rannsókna.
Fiskeldis- og fiskalíffræðideild hefur það að markmiði að afla þekkingar og miðla þekkingu á sviði sjávar- og vatnalíffræði, fiskeldis og fiskalíffræði. Deildin er alþjóðleg miðstöð rannsókna, kennslu og endurmenntunar í sjávar- og vatnalíffræði, fiskeldi og fiskalíffræði. Í deildinni er stuðlað að faglegri uppbyggingu fiskeldis í anda sjálfbærrar þróunar.
Í náminu er lögð sérstök áhersla á að nemendur læri að temja sér gagnrýna hugsun og að undirbúa þá undir að taka að sér forystuhlutverk í þróun atvinnuvegarins.
Verið Meginaðsetur deildarinnar er á Sauðárkróki í nýuppgerðu húsnæði við höfnina og þar fer fram nær öll kennsla. Vegalengdin á milli Hóla og Sauðárkróks er 31 km hvora leið.
Deildarstjóri er Bjarni Kristófer Kristjánsson -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.