Aðstaða Háskólans á Hólum til rannsókna á fiskeldi og lífríki sjávar og ferskvatns er mjög góð.
Verið á Sauðárkróki Á Sauðárkróki hefur Háskólinn á Hólum komið upp fullkominni kennslu- og rannsóknaraðstöðu í 1500 m² nýuppgerðu húsi, Verinu. Húsið er í eigu FISK Seafood. Í húsinu er fullkomin rannsóknastofa. Á neðri hæð hússins er fiskeldisstöð sem er sérhönnuð til rannsóknarstarfs og er þar hægt að stýra hitastigi og seltu vatns. Í stöðinni eru 180 þrjátíu lítra ker fyrir smáseiðarannsóknir, 27 eins rúmmetra eldisker, 15 tveggja rúmmetra eldisker, 4 átta rúmmetra eldisker auk klakrenna og margvíslegra fiskabúra til athugunar á atferli fiska.
Eldisstöð á Hólum Á Hólum er eldisstöð, sem nýtt er fyrir kynbætur á bleikju og rannsóknir þeim tengdum. Þar hófust kynbætur á íslenskri eldisbleikju, árið 1992, sem reynst hafa afar árangursríkar.
Náttúrulegt umhverfi Nálægð við vötn, ár og sjó skiptir máli í starfi deildarinnar. Fjölbreyttar gerðir vatna eru á svæðinu og eru flest þeirra ósnortin. Skólinn hefur yfir að ráða ýmsum útbúnaði til athugunar á villtum stofnum fiska.
Bókleg kennsla Bókleg kennsla fer að mestu fram í kennslustofum í Verinu. Í aðalbyggingu Háskólans á Hólum er bókasafn. Þar eru aðgengileg fagtímarit, um sérsvið skólans, auk þess sem bókasafnið er þátttakandi í verkefni um landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Á bókasafninu er lesaðstaða og aðstaða til hópvinnu. Tölvumál: Á nemendagörðum og í húsnæði háskólans á Sauðárkróki jafnt sem á Hólum geta nemendur tengst neti. Vinnuaðstaða og kaffistofur: Á Sauðárkróki er sameiginleg kaffistofa fyrir nemendur og kennara. Í aðalbyggingu á Hólum hafa nemendur sinn samkomustað og kaffistofu. Á bókasafni hefur verið komið upp les- og hópvinnuaðstöðu fyrri nemendur. Nemendur í framhaldsnámi fá til afnota skrifborð og bókahillur, þar sem þeir geta unnið á eigin tölvur, auk þess að fá aðgang að allri helstu þjónustu.