|
|
|
|
Diplómanám í fiskeldi NÝJUNG: Meginhluti námsins er kenndur í tveggja til fjögurra vikna lotum. Loturnar eru í boði í staðnámi þar sem nemandinn er allan tímann á Hólum og í fjarnámi þar sem nemandinn mætir í verklega hluta á Hóla. Nemendur geta valið um að taka allar loturnar í röð og ljúka þannig diplómanámi á einu ári, dreifa lotunum á fleiri ár og ljúka diplómanámi á lengri tíma eða sitja einstakar lotur og nýta þær sem endurmenntun í faginu. Markmið diplómanáms í fiskeldi við Hólaskóla - Háskólann á Hólum er að mennta einstaklinga til þess að sinna fjölbreyttum störfum á sviði fiskeldis og fiskalíffræði. Að loknu námi eiga nemendur að geta tekið að sér sérhæfð störf í fiskeldisstöðvum og sinnt rekstri fiskeldisstöðva.
|