Guðbrandsstofnun er sjálfstæð stofnun við Háskólann á Hólum og starfar hún samhliða deildum hans. Guðbrandsstofnun er rannsókna- og fræðastofnun við skólann. Hún lýtur sérstakri stjórn og hefur sjálfstæðan fjárhag. Hólaskóli, embætti vígslubiskups á Hólum f.h. Þjóðkirkjunnar og Háskóli Íslands eru aðilar að Guðbrandsstofnun
Markmið stofnunarinnar er að treysta þekkingu á sviði ýmissa fræðigreina, einkum guðfræði, sögu, bókmennta, fornleifafræði, siðfræði, prentlistar og sögu, kirkjulistar, tónlistar og myndlistar og að auki á sviði þeirra greina raunvísinda sem stundaðar eru bæði við Háskóla Íslands og Hólaskóla.
Guðbrandsstofnun er kennd við Guðbrand Þorláksson, einn helsta biskup sem setið hefur Hólastað. Hlutverk hans í íslenskri menningarsögu var mikið, bæði sem kennimanns, forvígismanns á sviði prentlistar og útgáfustarfsemi auk þess sem hann lagði stund á myndlist og hafði þekkingu á náttúrufræði. Lesa meira um Guðbrand.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.