Aðalhaus

  • Heim  
  • Deildir ▼
  • Námið ▼
  • Rannsóknir ▼
  • Hólar ▼
  • Þjónusta ▼
  • Stjórn og samstarf ▼
  • Starfsfólk ▼
  • Nemendur ▼
Gráður og námskeiðslýsingar   Inntökuskilyrði og umsóknir   Kostnaður   Námsreglur   Kennsluskrá
Ferðamálafræði   Fiskeldis- og fiskalíffræði   Hestafræði   Bókasafn   Guðbrandsstofnun   Sögusetur ísl. hestsins   Verið
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Hólarannsóknin   Verið   Rannsóknarstefna
Staðsetning   Sagan   Náttúra og umhverfi   Aðrar stofnanir   Ferðaþjónusta Ósýnilega félagið
Skrifstofa   Bókasafn   Námsráðgjöf   Stúdentagarðar   Mötuneyti   Tölvu- og tæknimál   Líkamsrækt   Sala   Önnur þjónusta  
Stefna   Stjórn   Starfsreglur   Námsreglur   Samstarf
Listi yfir starfsfólk   Starfsmannafélag Hólaskóla   Starfsmannastefna
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Stúdentafélagið   Námsreglur


VERIÐ - Vísindagarðar ehf Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar


Tilgangur félagsins er að annast rekstur kennslu- og rannsóknaraðstöðu í formi vísindagarða í tengslum við Háskólann á Hólum. Félagið stefnir að enn frekari uppbyggingu á þessu sviði með því að skapa aðstöðu og vettvang til aukins samstarfs atvinnulífs, skóla og rannsóknaraðila. Reynslan sýnir að samstarf atvinnulífs og háskóla á sviði tækni og vísinda með rannsóknir og nýsköpun markaðsafurða að markmiði skilar góðum árangri ef slík miðstöð vísinda og nýsköpunar er rekin í nánum tengslum við öflugan háskóla.

verhus

1. Stefna
Markmiðið með stofnun Versins er að annast rekstur kennslu- og rannsóknaraðstöðu ásamt því að skapa aðstöðu og vettvang til samstarfs milli vísindamanna og fyrirtækja á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi. Í Verinu koma saman frumkvöðlar og fræðimenn sem leitast við að rannsaka og finna ný tækifæri og koma þeim á framfæri samfélaginu til hagsældar.

2. Áherslusvið
Stefnt er að því að Verið verði þekkingarsetur í fremstu röð. Í fyrstu er lögð áhersla á fiskeldi og fiskalíffræði, sjávar- og vatnalíffræði ásamt líftækni. Hlutverk Versins Vísindagarða, er að skapa vettvang fyrir samstarf á þessum sviðum og leiða saman ólíka aðila sem hafa ákveðna sérstöðu og sérþekkingu, hver á sínu sviði. Með slíku samstarfi nýtir hver sína styrkleika en nýtur um leið góðs af styrk annarra.

3. Rannsóknar-, kennslu-, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur
Verið er rannsóknar-, kennslu-, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur sem nýtur góðs af nærveru við það vísinda- og þekkingarstarf sem fer fram í Háskólanum á Hólum. Sérstaða Versins byggist á nánum innbyrðis tengslum sem myndast á milli aðila sem starfa í Verinu ásamt tengslum við rannsóknar- og fræðastarf sem unnið er við Háskólann á Hólum. Þetta samband og samstarf ólíkra aðila, sem búa yfir mismunandi þekkingu og reynslu, mun styrkja frumkvöðla og sprotafyrirtæki í viðleitni sinni við að koma hugmyndum sínum og starfsemi á legg.

4. Húsnæði og byggingaframkvæmdir
Verið hefur yfir að ráða 1.525 fermetra húsnæði að Háeyri 1 á Sauðárkróki. Það skiptist í fjóra meginhluta: skrifstofurými, rannsóknar- og kennslustofur, eldisrými og þróunarrými.

5. Einkahlutafélagið Verið Vísindagarðar ehf.
Einkahlutafélagið Verið Vísindagarðar ehf var stofnað í janúar 2007. Tilgangur félagsins, samkvæmt samþykktum, er að annast rekstur kennslu- og rannsóknaraðstöðu í formi vísindagarða í tengslum við Háskólann á Hólum.

Framkvæmdastjóri félagsins er Gísli Svan Einarsson
Sími: 4557930
Gsm: 8207930
netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 

Verið

Almennt
Fréttir
Ritstjóri og umsjón með vef: Sólrún Harðardóttir | Vefurinn er unnin í vefumsjónarkerfinu Joomla