BA í ferðamálafræði 180 ECTS Nemendur þurfa að hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun sem kennslunefnd Háskólans á Hólum samþykkir. UMSÓKNAREYÐUBLAÐ
Diplóma í ferðamálafræði (ásamt landvarða- og staðarvarðaréttindum) 90 ECTS Nemendur þurfa að hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun sem kennslunefnd Háskólans á Hólum samþykkir. UMSÓKNAREYÐUBLAÐ
Diplóma í viðburðastjórnun 60 ECTS Nemendur þurfa að hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun sem kennslunefnd Háskólans á Hólum samþykkir. UMSÓKNAREYÐUBLAÐ
MA í ferðamálafræði Nemandi þarf að hafa lokið BA/BSc prófi með lágmarkseinkunn 6,5 eða sambærilegu prófi sem deildin viðurkennir. Heimilt er að víkja frá ákvæðum um ofangreindar lágmarkseinkunnir ef fyrir liggja rökstuddar ástæður. Vinsamlega hafið samband við deildarstjóra áður en umsókn er send inn. UMSÓKNAREYÐUBLAÐ - MA
Fiskeldis- og fiskalíffræðideild BS í sjávar- og vatnalíffræði 180 ECTS Nemendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða hafa sambærilega menntun sem samstarfsnefnd háskólanna samþykkir. Sótt er um hjá Nemendaskrá HÍ Diplóma í fiskeldisfræði 90 ECTS Nemendur þurfa að hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun sem kennslunefnd Háskólans á Hólum samþykkir. Eyðublað MS í sjávar- og vatnalíffræði 120 ECTS Nemandi þarf að hafa lokið B.S. prófi í raunvísindum með lágmarkseinkunn 6,5 eða sambærilegu prófi sem deildin viðurkennir. Heimilt er að víkja frá ákvæðum um ofangreindar lágmarkseinkunnir ef fyrir liggja rökstuddar ástæður. Eyðublað
Hestafræðideild Nám í reiðmennsku og reiðkennslu Nemendur þurfa að hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun sem kennslunefnd Háskólans á Hólum samþykkir. Allir umsækjendur þurfa að þreyta inntökupróf í reiðmennsku og standast þar lágmarkskröfur til að eiga kost á inngöngu í skólann. Inntökupróf verða dagana 14. - 19. júní. Nánar um prófið. Eyðublað
BS í hestafræðum - sameiginleg námsbraut með LbhÍ - 180 ECTS Stúdentspróf eða sambærileg menntun. Inntökupróf í reiðmennsku þar sem nemendur þurfa að sýna grunnfærni í samskiptum við hestinn og í reiðmennsku. Nánar um prófið. Sótt er um hjá LbhÍ
Fyrir nemendur sem þegar eru í námi við hestafræðideildina Tamningamaður 60 ECTS Hestafræðingur og leiðbeinandi frá Hólaskóla. Eyðublað
Þjálfari og reiðkennari 30 ECTS - Tamningapróf Hólaskóla og FT við skólann árið 2002 eða síðar. - Inntökupróf í reiðmennsku á væntanlegum próftökuhestum - lágmarkseinkunn 5,0. Inntökupróf verður dagana 22. og 23. júní. - Viðunandi keppnisárangur að mati skólans í a.m.k. 2 eftirtalinna greina: Tölt – fjórgangur – fimmgangur – gæðingaskeið – A-flokkur – B-flokkur. Eyðublað
Mat á fyrra námi
Nemendur sem áður hafa lokið sambærilegum námskeiðum á sama skólastigi og boðið er upp á í námi við Háskólann á Hólum, geta fengið námskeiðin metin til eininga. Þeir nemendur sem vilja fá nám sitt metið verða að senda skriflega beiðni þess efnis til kennslunefndar. Beiðnin þarf að hafa borist kennslunefnd innan einnar viku eftir að námskeiðið hefst. Með beiðninni skal leggja fram ítarleg gögn um það nám sem óskast metið. Almennt er ekki metið eldra nám en 10 ára nema þegar um mjög sambærilegt nám er um að ræða. Heimilt er að leggja fyrir stöðupróf til þess að meta hæfni nemenda.