| Sagan |
|
|
|
|
Hóla er ekki getið í Landnámu. Talið er, að þeir hafi byggst um miðja 11. öld úr landnámsjörðinni Hofi, sem er um 2,5 km fyrir framan Hóla, en hana byggði Hjalti Þórðarson. Því heitir dalurinn Hjaltadalur.
Um miðja 11. öld bjó á Hólum Oxi Hjaltason af ætt Hofsverja. Hann lét gera kirkju mikla. Um 1100 átti Illugi Bjarnason jörðina. Þegar ákveðið var að stofna biskupsstól á Norðurlandi, gaf hann Hóla til biskupsseturs. Á sjö alda tímabili voru Hólar hinn raunverulegi höfuðstaður Norðurlands og helsta menningarsetur fjórðungsins, enda starfræktur þar skóli lengst af. Mikill auður safnaðist að Hólum. Þegar veldi biskupsstólsins var sem mest á fyrri hluta 16. aldar, átti hann 352 jarðir og var það um 1/4 af öllum jörðum í Norðlendingafjórðungi. Þá átti Hólastóll víða rekaítök og önnur hlunnindi. Alls sátu 36 biskupar á Hólum, 23 í kaþólskum sið og 13 í lútherskum. Má þar nefna Jón Ögmundarson helga (1106-1121), Guðmund Arason góða (1203-1237), Auðun rauða Þorbergsson (1313-1322), Jón Arason (1524-1550) og Guðbrand Þorláksson (1571-1627) og Gísla Magnússon (1755-1779). Árið 1802 var stóllinn lagður niður og eignir hans seldar. Árið 1881 keypti Skagafjarðarsýsla Hóla, og ári síðar var stofnaður búnaðarskóli á Hólum sem hefur starfað nær óslitið síðan. Hlutverk skólans hefur breyst í tímans rás og skólinn hefur lagað sig að breyttum aðstæðum. Námið miðar að því að efla atvinnu- og menningarlíf í dreifbýli með fjölbreyttri starfsmenntun á sviði nútíma landbúnaðar. Árið 1999 fékk skólinn aftur hið upphaflega nafn; Hólaskóli. Árið 2003 fékk Hólaskóli heimild til að starfa sem háskólastofnun og vera með fullt nám til fyrstu háskólagráðu. Á undanförnum árum hefur vísindastarf skólans eflst verulega samhliða námsframboði. Samningar hafa verið gerðir við aðra háskóla um margvíslega viðurkenningu á námi skólans sem hluta af þeirra námi. Margir nemendur hafa unnið framhaldsverkefni til M.Sc. prófs undir leiðsögn kennara skólans. Heimild skólans til að starfa sem háskólastofnun er honum mjög mikilvæg og markar tímamót í sögu hans. Mikið var um dýrðir árið 2006 þegar haldið var upp á 900 ára afmæli biskupsstóls og skólahalds á Hólum. Sérstök vefsíða var sett upp um afmælishaldið, þar sem sjá má dagskrá, myndir og frásagnir af atburðum. Alþingi samþykkti ný lög um Hólaskóla - Háskólann á Hólum í desember 2006. Nýju lögin eru í samræmi við löggjöf um aðra ríkisháskóla. Lögin styrkja starf skólans mjög mikið og auka tækifæri hans til að þróast enn frekar. Með lögunum fær skólinn m.a. leyfi til að útskrifa masters- og doktorsnema. |