Vígslubiskup Hólastiftis býr á Hólum, hinu forna biskups- og menningarsetri. Hann hefur tilsjón með kristnihaldi í Hólastifti og er biskupi til aðstoðar um kirkjuleg málefni og annast biskupsverk er biskup Íslands felur honum. Mikilvægt samstarf er á milli Hólaskóla og vígslubiskups um móttöku gesta og menningarstarf ýmis konar. Núverandi Hólabiskup er hr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson og biskupsfrú er Margrét Sigtryggsdóttir. Hóladómkirkja er einstæð að gerð ásamt fornhelgum dýrgripum sínum og hefur mikið aðdráttarafl. Skoða vef Hóladómkirkju.
Héraðssetur Landgræðslu ríkisins á Hólum var stofnað 1996. Starfssvæði þess eru Húnavatnssýslur og Skagafjarðarsýsla. Helstu samstarfsaðilar eru auk Háskólans á Hólum: Búnaðarsambönd á Norðurlandi vestra, Leiðbeiningamiðstöðin á Sauðárkróki, sveitarstjórnir og fjallskila- og gróðurverndarnefndir. Meginþættir í starfsemi setursins eru að vinna að landnýtingar- og beitarmálum, bæði á einstökum bújörðum og á afréttum. Héraðsfulltrúi er Bjarni Maronsson. Skoða upplýsingar á vefsíðu Landgræðslunnar. Embætti dýralæknis í hrossasjúkdómum er á Hólum. Embættið er samstarfsverkefni Yfirdýralæknisembættisins og Háskólans á Hólum. Helstu verkefnin tengjast margvíslegum rannsóknum á heilbrigði hrossa og kennslu við skólann. Sigríður Björnsdóttir dýralæknir gegnir embættinu. Embætti yfirdýralæknis heyrir undir Matvælastofnun. Vefur Matvælastofnunar. Fiskeldisstöðin Hólalax h.f. Eigendur eru veiðifélög á Norðurlandi vestra, fyrirtæki og einstaklingar. Hún hefur náð umtalsverðum árangri í eldi og markaðssetningu á bleikju. Framkvæmdastjóri Hólalax er Friðrik Steinsson.
Verið-Vísindagarðar ehf var stofnað í janúar 2007. Tilgangur félagsins, samkvæmt samþykktum, er að annast rekstur kennslu- og rannsóknaraðstöðu í formi vísindagarða í tengslum við Háskólann á Hólum. Framkvæmdastjóri félagsins er Gísli Svan Einarsson. Skoða vefsíðu. Guðbrandsstofnun er sjálfstæð stofnun við Háskólann á Hólum og starfar hún samhliða deildum hans. Guðbrandsstofnun er rannsókna- og fræðastofnun við skólann. Hún lýtur sérstakri stjórn og hefur sjálfstæðan fjárhag. Í stjórninni sitja: Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup formaður, Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum og Einar Sigurbjörnsson prófessor fulltrúi Háskóla Íslands. Hólaskóli, embætti vígslubiskups á Hólum f.h. Þjóðkirkjunnar og Háskóli Íslands eru aðilar að Guðbrandsstofnun. Vefur Guðbrandsstofnunar. Sögusetur íslenska hestsins er staðsett á Hólum. Að setrinu standa: Hestamiðstöð Íslands, Hólaskóli og Byggðasafn Skagfirðinga. Því er ætlað að verða alþjóðeg miðstöð þekkingar og fræðslu um sögu íslenska hestsins, s.s. uppruna, þróun, eiginleika, notkun og samfélagsleg áhrif, frá landnámi til nútíma. Forstöðumaður Sögusetursins er Arna Björg Bjarnadóttir. Vefur Sögusetursins. Skógræktin á Hólum er samvinnuverkefni Hólaskóla og Skógræktarfélags Skagfirðinga. Um 150 hektarar lands eru nú plantaðir skógi. Innan skógræktarinnar eru tjaldstæði með hreinlætisaðstöðu og rennandi vatni. Ótal göngustígar liggja um skóginn og hafa þar m.a. nemendur ferðamáladeildar lagt sitt að mörkum. Grunnskólinn á Hólum er í göngufæri. Grunnskólinn á Hólum, á Hofsósi og Sólgörðum í Fljótum er ein stofnun og heitir Grunnskólinn austan Vatna. Skólastjóri er Jón Hilmarsson en aðstoðarskólastjóri á Hólum er Jóhann Bjarnason. Leikskólinn Brúsabær er í sama húsi og grunnskólinn. Leikskólastjóri er Anna Stefánsdóttir.