Aðalhaus

  • Heim  
  • Deildir ▼
  • Námið ▼
  • Rannsóknir ▼
  • Hólar ▼
  • Þjónusta ▼
  • Stjórn og samstarf ▼
  • Starfsfólk ▼
  • Nemendur ▼
Gráður og námskeiðslýsingar   Inntökuskilyrði og umsóknir   Kostnaður   Námsreglur   Kennsluskrá
Ferðamálafræði   Fiskeldis- og fiskalíffræði   Hestafræði   Bókasafn   Guðbrandsstofnun   Sögusetur ísl. hestsins   Verið
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Hólarannsóknin   Verið   Rannsóknarstefna
Staðsetning   Sagan   Náttúra og umhverfi   Aðrar stofnanir   Ferðaþjónusta Ósýnilega félagið
Skrifstofa   Bókasafn   Námsráðgjöf   Stúdentagarðar   Mötuneyti   Tölvu- og tæknimál   Líkamsrækt   Sala   Önnur þjónusta  
Stefna   Stjórn   Starfsreglur   Námsreglur   Samstarf
Listi yfir starfsfólk   Starfsmannafélag Hólaskóla   Starfsmannastefna
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Stúdentafélagið   Námsreglur


Nemendagarðar Hólaskóla Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Nemendur geta leigt húsnæði á Hólum meðan á námsdvöl þeirra stendur. Innifalið í húsaleigu er rafmagn og hiti. Hægt er að leigja með húsgögnum og þvottavél. Tengingar fyrir síma, tölvu og sjónvarp eru í íbúðunum. Nákvæmur listi yfir það sem fylgir íbúðum.

UMSÓKN UM HÚSNÆÐI Í NEMENDAGÖRÐUM

Nemendagarðar

Leiga, leigasamningur, húsaleigubætur
Leiga er samkvæmt gjaldskrá Nemendagarða Hólaskóla hverju sinni. Greitt er sérstakt tryggingagjald í upphafi sem fæst síðan endurgreitt við skil á íbúð ef allt er í lagi.

Verðskrá skólaársins 2009-2010:  

geittafla

Leigusamningur er undirritaður við upphaf skólaárs. Nemendur geta sótt um húsaleigubætur til þess sveitafélags sem þeir eiga lögheimili í. Leigusamningi þarf að þinglýsa á Sauðárkróki. Skólinn býður nemendum að ljósrita leigusamninga sína, á löggiltan skjalapappír fyrir þinglýsingu, á bókasafni.

Umsjónamaður húshalds er Aldís G. Axelsdóttir ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  / vs: 455-6314, gsm: 866-8503, hs: 453-6648). Umsjónamaður tekur út íbúðir áður en fólk kemur á staðinn og áður en það skilar íbúðinni.

Aldís afhendir fólki lykla og er æskilegt að það sé á dagvinnutíma. Þeir sem ekki geta komið á þeim tíma vinsamlega hafið samband með minnst dagsfyrirvara.

Umsjón með rekstri hefur Garðar Jónsson, s: 588 5800 ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ).

Úthlutunarreglur 
Viðgerðir

Húsnæði í boði

Tveggja herbergja íbúðir

Geitagerði 2,4,5 og Brúsabyggð 6:

23 íbúðir í tvílyftum steinhúsum. Íbúðirnar eru 49 fermetrar, tveggja herbergja með eldhúsi, baði og geymslu. Íbúðirnar henta vel fyrir einstaklinga, pör eða einstakling með 1 barn.

Geitagerði 6,7,9 og 11:

8 íbúðir í tvílyftum steinhúsum neðri hæð. Íbúðirnar eru 60-68,1 fermetrar, tveggja herbergja með eldhúsi, baði og geymslu. Íbúðirnar henta vel fyrir einstaklinga, pör eða einstakling með 1 barn.

Þriggja herbergja íbúðir

Geitagerði 6,7, 11 og Brúsabyggð 6:
7 íbúðir í tvílyftum steinhúsum efri hæð. Íbúðirnar eru 68,1 fermetrar, þriggja herbergja með eldhúsi, baði og geymslu. Íbúðirnar henta vel fyrir fjölskyldur og tvo einstaklinga.

Prestssæti 4 og 6, kjallari:
~57 fermetra íbúðir í kjallara svokallaðs Búshúss, sem er steinhús frá 1970. Í íbúðinni eru 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og bað. Íbúðirnar henta fyrir fjölskyldu.

Fjögurra herbergja íbúðir

Nátthagi 19 og 20

8 íbúðir í þrílyftum steinhúsum. Íbúðirnar eru 97,6 fermetrar að stærð. Í íbúðunum eru 3 svefnherbergi, stofa, eldhús, geymsla, þvottahús og bað. Íbúðirnar henta vel fjölskyldufólki.

Einstaklingsherbergi í 5 herbergja íbúðum

Brúsabyggð 6, Geitagerði 1 og Nátthaga 19 (1. hæð), Nátthaga 20 (1. hæð)

Einstaklingsherbergi, 8-12,6 fermetra, eru í stærri íbúðum með sameginlegri aðstöðu. Í íbúðunum eru tvö salerni, eitt eldhús, stofa og geymsla. Húsnæðið er leigt með húsgögnum í 9 mánuði.

UMSÓKN UM HÚSNÆÐI Í NEMENDAGÖRÐUM

Teikningar af íbúðum
Nokkrar ljósmyndir innan úr íbúðunum

 

Þjónusta

Skrifstofa
Bókasafn
Námsráðgjöf
Nemendagarðar
Mötuneyti
Tölvu- og tæknimál
Líkamsrækt
Sala
Önnur þjónusta
Ritstjóri og umsjón með vef: Sólrún Harðardóttir | Vefurinn er unnin í vefumsjónarkerfinu Joomla