Ferðamáladeild Háskólans á Hólum gengst fyrir fyrirlestrarröð á vordögum 2010 undir yfirskriftinni Vísindi og grautur. Föstudaginn 26. mars kl. 11.30 verður haldinn fyrirlestur í kennslustofu ferðamáladeildarinnar í skólahúsinu á Hólum í Hjaltadal.
Þórdís V. Bragadóttir MS líffræðingur við Náttúrustofu Norðurlands vestra mun halda erindi sem hún nefnir:
Fuglar og fuglaskoðun á Norðurlandi vestra
Fuglaskoðun er vinsælt áhugamál um heim allan og fara vinsældir hennar sívaxandi. Fuglaskoðarar, sem og annað ferðafólk með áhuga á að upplifa náttúruna, sækjast eftir að heimsækja áhugaverða fuglaskoðunarstaði. Ferðast fuglaskoðarar margir hverjir gagngert til ákveðinna landa og svæða til fuglaskoðunar.
Þrátt fyrir að fjöldi fuglategunda hér á landi jafnist ekki á við það sem er að finna í öðrum löndum þá er fjöldi einstaklinga mikill. Á Íslandi er jafnframt mögulegt fyrir fólk að sjá fuglategundir bæði af evrópskum og amerískum uppruna sem gerir landið mjög áhugavert í augum fuglaskoðara beggja vegna Atlantshafsins.
Gott upplýsingaflæði er forsenda þess að laða fuglaskoðara að ákveðnum svæðum. Er það til dæmis gert með bæklingum/kortum og á netinu. Stefnt er að útgáfu bæklings/korts um áhugaverða fuglaskoðunarstaði á Norðurlandi vestra og hófst vinna við gerð hans í janúar 2010. Stefnt er að því að kynna svæði þar sem fuglalíf þykir áhugavert út frá tegundafjölbreytni, fjölda fugla og samsetningu fuglalífs. Á þetta jafnt við um staði þar sem aðstaða til fuglaskoðunar hefur verið byggð upp á undanförnum árum eða ekkert hefur verið gert. Í bæklingnum/kortinu verður sýnd staðsetning góðra útsýnisstaða, helstu tegundir taldar upp og svæðinu lýst t.d. hvað varðar aðgengi, landslagi og hvað það er sem gerir staðinn áhugaverðan. Jafnframt verður fjallað um hvernig best sé að njóta fuglalífs á svæðinu án þess að það skaðist.
Að fyrirlestri loknum geta gestir keypt hádegisverð að hætti Hólamanna.
EventList powered by schlu.net