Aðalhaus

  • Heim  
  • Deildir ▼
  • Námið ▼
  • Rannsóknir ▼
  • Hólar ▼
  • Þjónusta ▼
  • Stjórn og samstarf ▼
  • Starfsfólk ▼
  • Nemendur ▼
Gráður og námskeiðslýsingar   Inntökuskilyrði og umsóknir   Kostnaður   Námsreglur   Kennsluskrá
Ferðamálafræði   Fiskeldis- og fiskalíffræði   Hestafræði   Bókasafn   Guðbrandsstofnun   Sögusetur ísl. hestsins   Verið
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Hólarannsóknin   Verið   Rannsóknarstefna
Staðsetning   Sagan   Náttúra og umhverfi   Aðrar stofnanir   Ferðaþjónusta Ósýnilega félagið
Skrifstofa   Bókasafn   Námsráðgjöf   Stúdentagarðar   Mötuneyti   Tölvu- og tæknimál   Líkamsrækt   Sala   Önnur þjónusta  
Stefna   Stjórn   Starfsreglur   Námsreglur   Samstarf
Listi yfir starfsfólk   Starfsmannafélag Hólaskóla   Starfsmannastefna
í ferðamáladeild   í fiskeldis- og fiskalíffræðideild   í hestafræðideild   Stúdentafélagið   Námsreglur


Tölvupóstur Prenta út

Eventlist

Atburður 

Titill:
Hafís og strandmenning - málþing
Hvenær:
10.02.10
Hvar:
Blönduós -
FLokkur:
Ráðstefna

Lýsing

Háskólasetrið á Blönduósi skipuleggur málþing:
HAFÍS OG STRANDMENNING

 

Miðvikudaginn 10. febrúar kl. 17-19.30 verður haldið málþing um hafís og strandmenningu á Pottinum og pönnunni á Blönduósi. Áhugaverð erindi verða flutt um málefni sem okkur eru ofarlega í huga núna á tímum loftslagsbreytinga og tíðra heimsókna ísbjarna til landsins. Meðal fyrirlesara eru alþjóðlega virtir erlendir og íslenskir fræðimenn. Ljóst er að á málþinginu gefst fólki kostur á að fræðast um ýmsar hliðar viðfangsefnisins frá mismunandi sjónarhornum.

DAGSKRÁ
Stutt kynning á Háskólasetri Háskólans á Hólum á Blönduósi
Fulltrúi stjórnar og Ester Helgadóttir sérfræðingur við Háskólasetrið
Island 1830-1999 :climate, paleoclimate and sea ice
Jean-Luc Mercier, prófessor við Háskólann í Strasbourg, Frakklandi 
Hafíssaga síðustu tíu þúsund ára
Ólafur Ingólfsson prófessor við Háskóla Íslands
Hafís og siglingar
Þór Jakobsson veðurfræðingur   
Kaffihlé                                   
Útbreiðsla og áhrif hafíss fyrr á öldum
Astrid Ogilvie prófessor við Institute of Arctic and Alpine Research í Boulder, Colorado           
Rauntímaeftirlit með hafís við Ísland
Ingibjörg Jónsdóttir dósent við Háskóla Íslands
Heimsóknir hvítabjarna á Íslandi á síðastliðnum árum
Þorsteinn Sæmundsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra
Umræður 

Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum verður fundarstjóri.

Aðgangur að málþinginu er ókeypis og eru allir velkomnir.

Háskólasetrið á Blönduósi er á vegum Háskólans á Hólum og starfar í góðu samstarfi við Blönduósbæ og önnur fræðasetur á svæðinu. Tilgangur setursins er að nýta aðstæður og svæðisbundna sérstöðu á Blönduósi og í Húnavatnssýslum til þess að efla fræðastarf og rannsóknir á forsendum staðbundinna auðlinda og í samstarfi við heimamenn. Markmið setursins er tvíþætt: Í fyrsta lagi að stunda annars vegar rannsóknir og fræðslu á sviði strandmenningar og hafíss á Norðurslóðum og hins vegar á sviði textílfræða. Í öðru lagi að styðja við uppbyggingu hvers kyns rannsókna og fræðslustarfa í héraðinu. Lögð er áhersla á samstarf við söfn, þekkingar- og fræðasetur á svæðinu, sem og á landsvísu og alþjóðlega.


Samkvæmt reglum Háskólans á Hólum um háskólasetur er meginhlutverk þeirra að efla rannsókna- og fræðastarf skólans um allt land og tryggja góð tengsl og samstarf við hvers kyns þekkingar- og fræðastarfsemi. Með þessu sé stuðlað að eflingu mannauðs á hverjum stað, góðri nýtingu staðbundinna auðlinda, aukinni menntun, rannsóknum og nýsköpun í öllum byggðum landsins.

Nánari upplýsingar veitir Ester Helgadóttir sérfræðingur við Háskólasetrið s: 8658019 / Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Staður

Staður:
Blönduós

Lýsing

Lýsingu á stað vantar.

EventList powered by schlu.net

Ritstjóri og umsjón með vef: Sólrún Harðardóttir | Vefurinn er unnin í vefumsjónarkerfinu Joomla